08.02.2012 15:37

Landleið

Jæja þa eru kallarnir a Graa Gullinu a landleið með allar skjolur fullar en i þetta sinn a að landa a
Akranesi það er litið stuð i höfninni hja okkur nuna en þo kom þetta skip i dag með oliu

                                          Ow Atlandtic ex Keilir

                                  Sandfellið okkar fagra i baksyn.

 Nu svo er naddla verið af skifa um þak a uppeldisstöðinni minni ( Gamla bræðslan)

06.02.2012 23:59

Börkur NK

Er þessi að koma í íslenska flotann ?

Fékk ábendingu í dag að skipið á myndinni hér að neðan væri á leið í íslenska flotann og myndi leysa annað eldra skip af hólmi. Og þegar ég skrifa á leiðinni þá er það í bókstaflegri merkingu því skipið er á siglingu til Íslands. Það heitir Torbas í dag en á þessari mynd sem Óðinn Magnason léði mér afnot af heitir hann Staalöy. Upphaflega Libas og síðar Ligrunn. Skipið mun fá alþekkt aflaskipsnafn eftir því sem heimildarmaður síðunnar segir og skipstjórinn kunnur af aflasæld.


LLBT. Staaloy H-99-AV ex Ligrunn. Í dag Torbas.  © Hoffell SU 80/Óðinn Magnason.
Skrifað af HH
 Fengið að láni frá 123.is/skipamyndir

_____Leyndarmálinu uppljóstrað-------------- en þetta vita allir á morgun hvort eð er.


                                  Í dag Torbas já eða Börkur Nk
                      
                                        Að koma til löndunnar hjá LVF 2010

                                                      Hin hliðin

                                          Dælan hífð um borð

                                                 Furðufuglar
Jæja en án gríns þá fara sögur af því að þetta skip sem í dag heitir Torbas að Síldarvinnslan sé búin
að kaupa það og það fái nafnið Börkur NK hvað gert verður við gamla er á huldu (þó ekki Þórorms)
en ein sagan segir að hann fái nafnið Birtingur NK og önnur að hann fái Grænlenskt flagg og eigi að
hjálpa Eriku (þó ekki pój) að veiða kvóta þeirra sem er orðinn ansi stór væ veit ég ekki.
         Sel þetta ekki dýrara en ég keyfti já eða stal.( hvernig á að skrifa kaufti)

03.02.2012 16:03

Faxafrettir

Naflinn!!!

Sælir lesendur góðir. Helstu fréttir af Faxanum eru þær að hann endaði þennan túr syðst í trollhólfinu austur af Gerpi. Það voru teknar þrjár sköfur í túrnum sem gáfu samtals um 850 tonn. Stefnan hefur verið sett á Vopnafjörð en siglingin af miðunum er um 100 sjómílur og er áætlaður komutími á naflann er um fjögurleitið í nótt.
Kompanískipið Ingunn var að veiðum á svipuðum slóðum og Faxinn, Víkingur er að moka upp loðnu á Grímseyjarsundinu en síðast þegar fréttist af þeim gamla þá var hann kominn með 800 tonn og nýbúin að kasta.
Lundey er undir í löndun á Vopna.
Kv.Faxagengið.


Hér kemur svo sería af myndum af Hoffellinu SU-80 teknar á miðunum í dag.




















Skrifað af Ritsjóra www.123.is/faxire9 og stolið þaðan af magnason

02.02.2012 18:56

Frændur minir landa

Nú er loðnuvertíðin komin í fullan gang og stefnir í eina bestu loðnuvertíð í mörg, en úthlutun til íslenskra skipa er nú 548.000 tonn.
Í fyrri nótt landaði Jóna Eðvalds SF 200 um 400 tonnum af loðnu hjá LVF og Ásgrímur Halldórsson SF 250 er að landaði um 1.400 tonnum i gær.
Hoffell er búið að landa fjórum túrum og landaði i nott um 750 tonn, en bræla var á miðunum.
Eftir þessar landanir verða komin á land á Fáskrúðsfirði um 6.500 tonn af loðnu. Loðnan hefur að mestu farið til bræðslu, en aðeins lítið magn af stærsta sílinu hefur verið fryst til manneldis.

 Fleiri myndir i albumi.

31.01.2012 12:53

Norskir bátar

Þrír Norskir bátar eru nú að landa slöttum á Eskifirði en það eru


Torbas 320 tonn Nybo að landa þarna 130tonn og Kvannøy var með 100tonn

30.01.2012 15:16

Færíska

Það verur seint sagt að það sé ekki gaman að skoða síður í Færeyjum

Finnur Fríði landar u.l. 700 tons av svartkjafti í Kollafirði.

Finnur Fríði kom inn á Kollafjörð í gjörskvöldið við 700 tonsum av svartkjafti.  Teir byrjaðu at landa beinan vegin og teir verða væntandi lidnir at landa á midnátt.

Teir royndu eftir svartkjafti sunnaliga í bankarennuni, har tað er krav at nýta rist. Finnur Fríði hevði somuleiðis eitt undirsjóvarkamera fest afturi í bellinum fyri at fylgja. Teir sóu einans ein upsa allan túrin.

Stöddin teir fingu var hampiliga góð, meginparturin var 200 gram/+


 Fengið að láni á vinnan.fo.


29.01.2012 23:05

Farnir á sjó túr 5

Jæja þá eru gullinn farin á hafið eftir að hafa notað bræluna til að landa skaufa ca. 800 tonn...
                    Skrapp smá bryggjurúnt í dag í rigningarsuddanum


                          Aðeins verið að halla Gráa Gullinu


                           Flottur


                          Kraninn hans Bigga stendur fyrir sýnu


                                        Það eru ekki svellin


                                                         Tekinn í gegnum rörið

27.01.2012 00:07

765 þúsund tonn

Útflutningsverðmæti loðnuafurða áætlað um 30 milljarðar króna

Loðna_2011Mælingu á stofnstærð veiðistofns loðnu er lokið og leggur Hafrannsóknarstofnunin til að heildaraflamark loðnu á vertíðinni 2011/2012 verði 760 þúsund tonn. Loðna mældist á stóru hafsvæði bæði djúpt og grunnt.  "Þetta eru mjög góðar fréttir í tvennum skilningi og þær bestu í langan tíma af loðnustofninum. Þetta er jákvæðar fréttir fyrir þá sem veiða og vinna loðnu og einnig varðandi aðgengi þorsks og annarra nytjastofna að henni til fæðu, " sagði Friðrik J Arngrímsson framkvæmdastjóri LÍÚ aðspurður um þessa tillögu Hafrannsóknarstofnunarinnar. Hlutur Færeyja er 30.000 tonn og að teknu tilliti til erlendra skipa verður hlutur Íslands um 590 þúsund tonn. Útflutningsverðmæti loðnunnar er um 30 milljarðar króna.

Af vef Líú

26.01.2012 13:34

Norskur

Ekki hefur verið mikið um landanir Norska skipa á loðnu á Íslandi þó er eitt núna á Eskifirði að landa í bræðslu þar er KANSTADFJORD með um 500 tonn.

   KANSTADFJORD á Eskifirði í dag


 

25.01.2012 23:30

Vaknaður

Jæja þá er kallinn vaknaður eftir langan dvala og kannski ekki úr vegi að setja eitthvað á síðuna


 og auðvítað byrjar maður á að setja inn mynd af tertu sem var bökuð á Sumarlínu að sjálfsögðu á meðan ég svaf þar af Björgu Hjelm.


           assskoti er þetta gott strákar eða það er að sjá á Jónsa allavega


           en eins og ykkur grunar kannski eru þeir á loðnu vænn poki þarna á síðunni


 Palli að sýna hringinn sinn he he en hann er skipper núna á Gráa Gullinu á meðan Bergur og frú Jónína eru að spóka sig hinum megin á hnettinum hún að strauja visakortið á meðan kallinn kennir einhverjum að græða peninga


        brúin nóg pláss núna engin aukakíló að þvælast þarna ( Úpps)


 nei þetta er ekki öndunarvél á spítala þetta er Makkin hans Kristmundar


 nýji pabbinn Halli á Gili er um borð enda kosta víst barnavagnar spons í Austurríki


                                         það er ekki brælan þarna.
                        Ljósmyndir Kristmundur Þorleifsson maskínumeistari

26.12.2011 14:30

Jólakveðja

Áhöfnin á Hoffelli SU 80 og vefstjóri óska öllum gleðilegra jóla og bestu óskir um gæfuríka framtíð með þökkum fyrir samstarfið á árinu.Kærar kveðjur og þakkir fyrir innlitið á síðuna.




                        Fleiri myndir í albúmi.
    Flettingar í dag: 6
    Gestir í dag: 6
    Flettingar í gær: 250
    Gestir í gær: 142
    Samtals flettingar: 185534
    Samtals gestir: 79216
    Tölur uppfærðar: 10.2.2012 01:04:37
    clockhere