15.05.2012 18:34
Af heimasíðu Loðnuvinnslunnar
| Ótrúleg vinnubrögð "hagsmunaaðila" innan LÍÚ 15/5/2012 - 08:54:04 |
|
Eitt umdeildasta mál innan LÍÚ á síðustu árum hefur verið hvernig staðið var að úthutun norsk-íslensku síldarinnar og í framhaldi af því hvernig ákveðnir hagmunaaðilar innan samtakanna ætluðu að úthluta sjálfum sér kvóta í makríl eða að minnsta kosti að hafa veruleg áhrif á niðurstöðuna.
Upphaf þessa máls má rekja til ársins 2002 þegar norsk-íslenska síldin var sett í kvóta. Lög um fiskveiðar utan lögsögu (151/1996) tóku á því hvernig skyldi staðið að úthlutun norsk-íslensku síldarinnar. Þar segir m.a. í 5. gr.: "Sé tekin ákvörðun um að takmarka heildarafla úr slíkum stofni sem samfelld veiðireynsla er á skal aflahutdeild einstakra skipa ákveðin á grundvelli veiðireynslu þeirra miðað við þrjú bestu veiðitímabil þeirra á undangengnum sex veiðitímabilum." Þegar síldinni hafði verið úthlutað og menn fóru að skoða stöðu sína kom í ljós að lögunum hafði verið breytt án nokkurs samráðs eða kynningar af hálfu stjórnenda LÍÚ eða af hálfu stjórnvalda. En hvernig og hvers vegna var lögunum breytt? Inn í lögin hafði m.a. verið sett svohljóðandi ákvæði til bráðabirgða: "Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. 5. gr. skal Fiskistofa úthluta einstökum skipum aflahlutdeild í norsk-íslenska síldarstofninum á grundvelli aflareynslu þeirra á árunum 1994-2001 að báðum árum meðtöldum". Undirritaður fór á fund sjávarútvegsráðherra á þeim tíma, þar sem honum fannst m.a. hlutur Fáskrúðsfirðinga nokkuð rýr. Það var ljóst að lögunum hafði verið breytt þannig að nú skyldi úthlutunin miðast við átta ár í stað þriggja bestu. Þessi breyting hafði það í för með sér að hlutur þeirra sem höfðu svokallaða meiri veiðireynslu var aukinn, en hlutur hinna sem höfðu svokallaða minni reynslu var nánast þurrkaður út. "Þeir vildu hafa þetta svona hjá LÍÚ og ég get ekkert frekar gert í málinu" upplýsti ráðherrann. En hverjir þessir "þeir hjá LÍÚ" voru hefur aldrei verið upplýst eða á hvern hátt var staðið að þessu máli af hálfu samtaka útgerðarmanna þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir þar um. Þar var sagt að umsögn LÍÚ um þessa lagabreytingu finnist ekki og trúlega hafi þetta verið einstaka útgerðarmenn sem komu þessu til leiðar. Smátt og smátt var svo aflahlutdeild flestra þeirra sem minnst fengu keypt eða gleypt af þeim sem mestri hlutdeild var úthlutað til skv. nýja bráðabirgðaákvæðinu. Afleiðingarnar af þessum ótrúlega gjörningi sjást best þegar litið er á skiptingu norsk-íslensku síldarinnar í dag, en hafa skal einnig í huga að nokkur fyrirtæki eiga stóra hluti hvort í öðru, svo að samþjöppunin er í raun enn meiri.
Árið 2001 stunduðu 64 skip veiðar á norsk-íslenskri síld, en árið 2012 eru þau 18 í eigu 11 fyrirtækja, sem eru eftirfarandi:
Reynt hefur verið að ná samstöðu um það innan útvegsins að leiðrétta að
einhverju leyti þessi dæmalausu vinnubrögð en ekki tekist. Þar hafa
lagt sig fram Adolf Guðmundsson og Gunnþór Ingvason. Ég skora á hæstvirt stjórnvöld og alla góða þingmenn að taka þessi mál til endurskoðunar og vinna að sanngjarnri lausn samfara nýju kvótafrumvarpi. Við getum ekki látið þessa hluti vera afskiptalausa. Munum eftir hugtökunum jafnræði, sanngirni og réttlæti. Myndir settar inn af handahófi |
16.04.2012 17:08
Kolmunnavertíð

og lönduðu aflanum sem var ríflega 1000 tonn sem gekk að mestu

slysalaust fyrir sig og ekki var nú brasið í

bræðslunni við að gera peninga úr aflanum enda nýr vaktformaður á svæðinu ( Halli)

lagt af stað í síðasta túr

noo og ekki var nú lengi verið að skrapa í trollið

350 tonn í skjóðunni

og stutt í brosið

skyldi Jónsi hafa gleymt Camelnum heima ( trúlegt)

Árni vélstjóri kátur með holið

hnýtt fyrir pokan fyrir næsta hol

Gunnar bómustjóri klár á fjarstýringunni.
Fleiri myndir í albúmi
13.04.2012 23:48
TK Bremen

Le 16 décembre au matin le cargo TK Bremen s'échouait sur la plage de Kerminihy à Erdeven lors de la tempête Joachim. Le chantier de déconstruction bat son plein.
TK Bremen strandar 16 Desember 2011.

28 Desember.

Ekki fallegt.

Le 16 décembre au matin le cargo TK Bremen s'échouait sur la plage de Kerminihy à Erdeven lors de la tempête Joachim. Le chantier de déconstruction bat son plein.
Mynd tekin 16 Janúar 2012 engin vettlingatök þarna
myndir fengnar að láni hjá https://www.facebook.com/ouest.france
01.04.2012 18:40
Satt og logið
Hér er mynd af Friðriki Guðmundssyni verkefnastjóra og stjórnarformanns hjá Loðnuvinnslunni að máta
bræðslustjóra stólinn.

Það var engin tilviljunn að þessi gaur var að þvælast í bræðslunni í vetur hann hafi vissu fyrir því að
bræðslustjórastóllinn væri að losna vegna þess að

þessi hafi verið ráðinn í sérstök verkefni hjá KSÍ við efla fótbolta áhuga hjá ungu fólki á austurlandi
en þá er ekki eins og hann verði ekki bræðslustjóri áfram því hann hefur líka tekið að sér að vera
bræðslustjóri á Borgarfirði eystri í staðin fyrir Magna Ásgeirsson.

Miklir peningar streyma nú inn á bækur Loðnuvinnslunnar í formi afurðaverðs og

björgunarlauna vegna Ölmu (500 millur)og þess vegna er verið að skoða það segir sagan að

skifta Hoffellinu út fyrir annað skip hæfilega gamalt en öflugt og gott en vinir okkar í
færeyjum vilja leggja þessu skipi og fá Hoffellið í staðinn en með þeim skilyrðum þó að

Loðnuvinnslan kaupi þetta skip á móti til að þeir geti sameinað minkandi kvóta á hin skipin.

Þá að öðru en eins og allir vita hefur verið unnið í því dag og nótt að endurbyggja gömul hús
hjá Loðnuvinnslunni sem er fínt mál en sum þeirra vantar hlutverk en nú er búið að ákveða að
nota þetta hús sem vöruafgreiðslu þangað mun öll vara sem LVF fær senda og sendir fara í gegn
en eftir skipulagsbreytingar hjá Samskip hefur vantað að koma þessu i betra form en nú kemur varan bara einn stað en ekki 6 eða 7 og verður dreyft þaðan á deildirnar til þess verks hefur verið fenginn

Jens Dan en það mun vera lítið að gera hjá honum á milli þess sem hann sinnir Önnu sinni
vélum og tækjum í frystihúsinu kyrkjugörðunum og öllu hinu sem ég kann ekki að nefna.

Þessi mun vera að flytja til Svíþjóðar og er báráttan um löndunarstjórastöðuna þegar hafin

en þessir tveir koma helst til greina enda báðir Borgfirðingar en vegna reglna um kynjaskiftingu

þá reika nú flestir með að Alberta hljóti að fá starfið enda allt í öllu þegar eitthvað er um að vera í
löndunnarhúsinu.
- 1


